Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um rekstur fyrirtækja og umhverfi þeirra. Fjallað er um grunnatriði hagfræðinnar og skilgreiningar á mismunandi skipulagsheildum. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir fyrirtæki sem skipulagsheild og hvernig það þrífst í samkeppni við önnur fyrirtæki. Farið er yfir helstu þætti er varða innra skipulag og ytri aðstæður fyrirtækja. Einnig er farið í flokkun atvinnugreina, kynnst umhverfi og starfsgrundvelli fyrirtækja, stefnumótun og markmiðssetningu og kostnaðargreiningu.
LÍFS1FL02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum hagfræðinnar skorti, vali og fórnarkostnaði
hugtökunum framboð og eftirspurn
helstu framleiðsluþáttum
helstu kostnaðarhugtökum
muninum á beinum og óbeinum kostnaði
muninum á frumvinnslu, úrvinnslu og þjónustu
þáttum er ráða staðarvali fyrirtækja
starfsgrundvelli fyrirtækja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja hugtökin tekjur, kostnaður og afkoma
nota aðferðir við útreikning framlegðar og rekstrarjafnvægis
þekkja mismunandi rekstrarform fyrirtækja
reikna út eigið verð afurðar (sjálfskostnað)
gera fjárhagsáætlun og skilja hagnýtingu fyrir stjórnendur fyrirtækja
vinna að stefnumótun og mikmiðssetningu fyrirtækja
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja hvernig verðmæti myndast innan fyrirtækja og hvernig þeim er ráðstafað
fjalla um helsut þætti í umhverfi fyrirtækja og greini á milli þátta sem þau hafa áhrif á og greini á milli þátta sem þau hafa áhrif á og þeirra sem þau hafa lítil eða engin áhrif á
fjalla um framleiðslukerfi skipulag tækja og mannafla, teikningu framleiðsluferla og samræmingu á afkastagetu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.