Í áfanganum lærir nemandinn að taka líkamsmál og vinna með stærðartöflur, grunnsnið og sniðútfærslur. Hann lærir á saumavél og lögð er áhersla á saumtækni með ýmsum gerðum af prufusaumi. Kennt er að leggja snið rétt á efni og reikna út efnisþörf. Saumaðar eru einfaldar flíkur. Nemandinn lærir um helstu vefjarefnin, eiginleika þeirra og vinnslu. Lögð er áhersla á að nemendur skilji vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík og temji sér vönduð vinnubrögð við alla þætti ferlisins.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig líkamsmál eru tekin og borin saman við stærðartöflur
uppbyggingu grunnsniða, heitum og útliti ólíkra sniðhluta
þráðréttu og mikilvægi saummerkinga á sniðum
hvernig efnisþörf er reiknuð út frá sniðum
notkun grunnsniða til að útfæra og sauma einfaldar flíkur
hvernig sniðhlutar eru lagðir á efni eftir þráðréttu og saumför teiknuð inn á efnið
saumtækni með prufusaumi, t.d. rennilás, hnappagöt og ýmsar gerðir af vösum
heitum, eiginleikum og vinnslu vefjarefna t.d. ull, bómull, hör, silki, hálf- og algerviefnum
mismunandi hráefnum og eiginleikum þeirra og framleiðsluferli hráefna úr trefjum í voðir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka líkamsmál og skilja stærðartöflur
útfæra einföld snið út frá grunnsniðum
geta raða sniðhlutum á efni eftir þráðréttu
teikna saumför, falda og aðrar merkingar á efni áður en klippt er
nota saumavélar og þekkja notagildi stillinga, saumavélafóta og saumvélanála
sauma einfaldar flíkur og saumtækniprufur
greina á milli helstu vefnaðargerða
lesa alþjóðlegar hráefnis-, innihalds- og meðferðarmerkingar á textíl
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa úr stærðartöflum og aðlaga grunnsnið að mældum líkamsmálum
nýta grunnsnið til að vinna einfaldar sniðbreytingar út frá eigin hugmyndum
meta og nýta sér viðeigandi stillingar á saumavélum sem og fætur og nálar eftir efnum og saumtækniatriðum
útskýra vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík
standa skil á vinnuskýrslu með teikningum og texta
nýta sér orðaforða greinarinnar til að útskýra ferlið í samræðum og rituðum texta.
meta hvaða textílefni hentar mismunandi flíkum eftir notagildi
útskýra framleiðsluferli textílhráefna
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.