Í áfanganum kynnist nemandinn undirstöðuatriðum alhliða hugmyndavinnu. Hann vinnur eftir ferlinu frá því að hugmynd kviknar og þar til hún hefur fengið ákveðið form. Lögð er áhersla á sambandið milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og listrænnar sköpunar, greiningar og túlkunar. Nemandinn fær þjálfun í að þróa hugmyndir sínar,
starfa sjálfstætt, setja fram hugmyndir, meta og gagnrýna eigin verk. Hver nemandi kynnir verkefni sín og þær lausnir sem notaðar eru. Áhersla er lögð á umræður um verkefnin og að nemendur læri hver af öðrum.
SJÓN1TF05, SJÓN1LF05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sambandi milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og niðurstöðu
litum, gildi þeirra og notkun í umhverfi okkar
hvernig náttúran og eigin menning er uppspretta hugmynda við eigin vinnu og hönnuða almennt
heildar hönnunarferlinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með hönnun sína í myndvinnslu og munsturforritum
tileinka sé nýjungar í gegnum upplýsingamiðla, handbækur og fagtímarit
nota mismunandi litasamsetningar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þróa hugmynd eftir markvissu þróunarferli
setja fram hugmynd munnlega, skriflega og á myndrænan hátt
nýta sér náttúru og eigin menningu sem uppsprettu hugmynda við eigin vinnu
rökstyðja eigið verk, taka gagnrýni og gagnrýna aðra á jákvæðan hátt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.