Í áfanganum verður farið yfir grunnatriði prjóns og hekls. Fjallað verður um helstu vefjarefnin sem notuð eru við framleiðslu á garni og áhöld sem notuð eru til prjóns og hekls. Auk þess læra nemendur að lesa uppskriftir á íslensku og ensku og hvernig gengið er frá prjónuðum og hekluðum stykkjum og þau fullkláruð.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum í hekli og prjóni
lita og framleiðslunúmerum garns og mismunandi vefjarefnum sem notuð eru við prjón og hekl
þeim áhöldum sem notuð eru við prjón og hekl
hinum ýmsu aðferðum sem notaðar eru við prjón og hekl
hvar hægt er að nálgast uppskriftir og kennslumyndbönd á veraldarvefnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og fara eftir prjóna- og hekluppskriftum, bæði á íslensku og ensku
hekla loftlykkju, keðjulykkju, fastapinna og stuðla
nota a.m.k. tvær aðferðir við uppfit
prjóna slétta og brugðna lykkju, fella af, lykkja og sauma saman stykki
ganga frá endum í hekluðum og prjónuðum verkum
nota kennslumyndbönd á veraldarvefnum
vanda vinnubrögð og allan frágang á verkefnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér upplýsingatækni við vinnu í hekli og prjóni
nýta vinnuleiðbeiningar í máli og myndum og lesa úr þeim
tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð og vanda alla þætti ferilsins
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.