Kynnt eru grundvallarhugtök og meginviðfangsefni markaðsfræðinnar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemandans á gildi markaðsstarfs fyrir neytendur, fyrirtæki og samfélagið í heild sem og neikvæðar afleiðingar þess. Leitast er við að nemandinn tileinki sér markaðslega hugsun, t.d. með því að skoða og tákngreina kynningarefni. Fjallað er um söluráðana og samval þeirra við markaðssetningu. Nemandanum eru kynnt helstu atriði er varða umhverfi fyrirtækja, markaðshlutun, samkeppnisgreiningu og vinnuferli við markaðssetningu. Sérstaklega er fjallað um breyttar áherslur í markaðssetningu með aukinni tækni. Æskilegt er að gefa nemandanum kost á að kynnast vinnubrögðum í markaðssetningu með því að vinna að hagnýtum kynningarverkefnum á því sviði í nærsamfélaginu.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélag
mikilvægi samkeppnisgreiningar
hugtökum varðandi vörur og vöruþróun
samvali söluráða
kaupvenjum neytenda
mikilvægi markaðshlutunar í öllu markaðsstarfi
breytingum í markaðsstarfi
neikvæðum áhrifum markaðsstarfs
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina kynningarefni
beita samvali söluráða
skoða kaupvenjur einstaklinga
framkvæma markaðshlutun
framkvæma samkeppnisgreiningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla um áreiti frá markaðnum á gagnrýninn hátt
leysa af hendi markaðshlutun og samkeppnisgreiningu
setja saman vel rökstutt val á söluráðum
vinna kynningarefni og velja boðleiðir
leysa af hendi táknfræðigreiningu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.