Í áfanganum er fjallað um sögu jarðar, tímabil hennar og hvað einkennir. Sérstök áhersla verður lögð á jarðsögu Íslands, myndun og mótun lands fyrir og á ísöld. Áfanginn byggir að miklu leyti á verklegum æfingum og verkefnum sem nemendur vinna undir leiðsögn kennara.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• helstu tímabilum jarðsögunnar
• þróun lífs á jörðu
• þeim ferlum sem mótað hafa jörðina
• jarðsögu Íslands
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• lesa fræðilegan texta í jarðfræði á íslensku og ensku
• notfæra sér jarðfræðikort
• afla upplýsinga um jarðfræðileg fyrirbæri
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
• yfirfæra fræðin á umhverfi sitt
• lesa og túlka landslag með tilliti til aldurs
• tjá og miðla jarðfræðilegum upplýsingum á fjölbreyttan hátt
Skýrslur og skilaverkefni úr verklegum æfingum. Hlutapróf, rafræn eða skrifleg, sem nemendur leysa í kennslustundum eða utan þeirra.