Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1424249908.27

    Almenn lífsleikni og nýnemafræðsla
    LÍFS1AN03
    33
    lífsleikni
    Almenn lífsleikni og nýnemafræðsla
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Áfanginn er ætlaður öllum nýnemum og er ætlast til að nemendur taki áfangann á fyrstu önn. Í áfanganum læra nemendur á nýja skólann, kynnast skólaumhverfinu, því námi sem þar fer fram og þeim leiðum sem geta hjálpað til við nám. Farið er í gegnum ýmis atriði sem hjálpa nemendum að fóta sig í framhaldsskóla, svo sem námstækni, notkun á bókasafni og fleira. Einnig verður farið yfir efni sem tengist því að auka sjálfsmynd nemenda, samskipti, tjáningu, sorg og sorgarviðbrögð, réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skólanum og umhverfi hans
    • því námi og þeim námsmöguleikum sem í boði eru
    • góðum vinnubrögðum, námstækni og mikilvægi markmiðssetninga
    • helstu hugtökum sem tengjast sjálfsmynd og þekkingu og skilningi á eigin persónu
    • því hvernig skal undirbúa og flytja munnleg erindi við mismunandi aðstæður
    • því félagslífi sem í boði er
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera námsáætlun
    • beita námstækni
    • nýta sér það félagslíf sem í boði er
    • tjá sig fyrir framan nemendahópinn
    • rýna í eigin sjálfsmynd og meta eigin stöðu
    • nýta sér góð vinnubrögð, góða námstækni og setja sér raunhæf markmið
    • skoða námsframboð og námsleiðir og tengja áhugasvið við náms- og starfsval
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja sér leið gegnum framhaldsskólakerfið og búa til námsáætlun fyrir nám að loknum framhaldsskóla ...sem er metið með... nota árangursríka námstækni, stjórna einbeitingu, beita mismunandi minnisaðferðum, skipuleggja og undirbúa próflestur, glósutækni, lestrartækni og tímastjórnun
    • flytja mál sitt á sannfærandi og öruggan hátt
    • Vera meðvitaður um styrkleika sína
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.