oxunar/afoxunarhvörf, oxunartölur, oxara og afoxara. Orku í efnahvörfum og varmabreytingar. Jafnvægislögmálið, og jafnvægi efnahvarfa. Lögmál Le Chateliers, leysni salta og leysnimargfeldi. Sýrur og basa, sýrufasta, sýru-/basahvörf , búffera, pH og títrun. Lögð verður áhersla á sjálfstæði í verklegum æfingum og vinnubrögðum almennt.
Ólífræn efnafræði á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
oxun/afoxun og oxunartölun og hvernig er hægt að nýta þær
inn og útvermum hvörfum, hvarfvarma og virkjunarorku hvarfa
jafnvægislögmálinu og lögmáli Le Chateliers
sýrum og bösum, pH hugtalinu, sýru –basa pörum, búfferlausnum, römmum og daufum sýrum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum þeirra
finna oxunartölur og jafnvægistilla með þeim
reikna út orku í efnahvörfum
Finna jafnvægisfasta og hvarfakvóta
finna leysni salta, leysnimargfeldi og nota lögmál Le Chateliers.
finna sýrustig , rammra og daufra sýra og búfferlausna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
Sjá tengslin milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu og leikni á milli þeirra og tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
Nýta þekkingu úr efnafræði til að taka ákvarðanir og geta myndað sér skoðun og taka þátt í rökræðum sem byggja upp þekkingu á efnafræði
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámsskrá