Í þessum áfanga er fjallað um ritun, bókmenntir og málnotkun. Ritun: Fjallað um ólíkar gerðir ritsmíða og nemendur læra að setja mál sitt og skoðanir fram á markvissan hátt. Nemendur styrkja færni í mikilvægum atriðum um frágang ritaðs máls, meðferð heimilda og leiðbeiningarforrita við tölvuvinnslu. Setningafræði: Farið er í grundvallaratriði setningafræði. Unnið með mál og málnotkun. Bókmenntir og læsi: Nemendur læra að tjá sig um bókmenntir og bókmenntafræði með styttri ritsmíðum og bókmenntaritgerðum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum í ritgerðasmíð og framsetningu ritaðs máls í ólíkum ritsmíðum
málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
ólíkum textum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
rita ólíkar tegundir ritsmíða og beita gagnrýninni hugsun
nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til þess að efla eigin málfærni
lesa sér til gagns og gamans nytjatexta og bókmenntaverk og fjalla um inntak þeirra
koma skoðunum sínum á framfæri á skýran hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
styrkja málfærni sína
vinna ólík verkefni í tengslum við námsefnið og sýna nokkur tilbrigði í málnotkun
beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
byggja upp röksemdafærslu, tjá afstöðu og taka þátt í umræðum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá