Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1424336041.2

    Læsi, ritun og tjáning
    ÍSLE1TL05(00)
    None
    íslenska
    Læsi, ritun, tjáning
    í vinnslu
    1
    5
    00
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur treysti kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar og lesi fjölbreytta texta, s.s. bókmenntatexta, ýmsa texta sem birtast í dagblöðum, tímaritum, fræðiritum og á Netinu. Nemendur þjálfast í fjölbreyttri ritun og tjáningu. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.
    Grunnskólapróf. Nemendur sem hefja nám í þessum áfanga hafa fengið einkunnina C eða D í íslensku á grunnskólaprófi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forsendum góðrar framsagnar og eðlilegrar framkomu við flutning texta
    • mismunandi málsniðum og sérkennum talmáls og ritmáls
    • helstu atriðum varðandi ritgerðarsmíðar
    • helstu hugtökum í bókmenntafræði
    • helstu hugtökum í bragfræði
    • íslenskri stafsetningu og greinarmerkjasetningu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og tjá sig um fjölbreytta texta
    • skrifa texta á vönduðu máli þar sem samhengis í efni er gætt
    • ganga frá stuttri ritgerð á viðeigandi hátt í tölvu
    • beita hugtökum í bókmenntafræði í umfjöllun um bókmenntir
    • beita hugtökum í bragfræði í umfjöllun um bundið mál
    • beita réttri stafsetningu og greinarmerkjasetningu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • flytja framsögu á skýran og áheyrilegan hátt ...sem er metið með... fyrirlestri
    • skrifa stutta ritgerð á vönduðu máli þar sem samhengis í efni er gætt ...sem er metið með... ritgerð
    • túlka valin ljóð og átta sig á byggingu þeirra ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófi
    • fylgja reglum um stafsetningu og greinarmerkjasetningu við að koma frá sér rituðu máli ...sem er metið með... verkefnum, ritgerð og prófi
    • axla ábyrgð á eigin námi ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
    • taka virkan þátt í kennslustundum ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
    • beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópvinnu ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
    • tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
    • tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina.
    Gert er ráð fyrir leiðsagnarmati í áfanganum en það byggir á stöðugri endurgjöf kennarans um frammistöðu nemandans. Meðal námsmatsþátta verður: fyrirlestur, stutt ritgerð, ýmiss konar verkefni (bæði munnleg og skrifleg, einstaklings- og hópverkefni), skriflegt próf í lok annar og mat á undirbúningi og þátttöku nemandans í kennslustundum á önninni.