Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1424338231.46

    Bókmenntir, málfræði og ritun
    ÍSLE2AB03(21)
    None
    íslenska
    Bókmenntir, málfræði og ritun
    í vinnslu
    2
    3
    21
    Í áfanganum er megináhersla lögð á að skoða ólíka texta út frá bókmenntalegu og málfarslegu sjónarmiði. Markmiðið er að nemendur þjálfi hæfni sína til að beita fræðilegum hugtökum við umfjöllun, rökræður og samanburð ólíkra texta og læri um leið að nýta sér þekkingu sína og þjálfun við eigin textagerð. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.
    ÍSLE1TL03(11)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum í bókmenntafræði
    • helstu hugtökum í bragfræði
    • helstu hugtökum í setningafræði
    • helstu hugtökum í hljóðfræði
    • helstu einkennum íslenskra mállýskna.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og tjá sig um fjölbreytta texta frá ólíkum tímum
    • skrifa texta á vönduðu máli þar sem samhengis í efni er gætt
    • ganga frá ritgerð á viðeigandi hátt í tölvu
    • nota handbækur og hjálparforrit varðandi stafsetningu, meðferð heimilda og framsetningu texta
    • beita hugtökum í bókmenntafræði í umfjöllun um bókmenntir
    • beita hugtökum í bragfræði í umfjöllun um bundið mál
    • beita hugtökum í setningafræði í umfjöllun um málfar
    • hljóðrita einföld orð.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • flytja fyrirlestur um bókmenntaverk á skýran og áheyrilegan hátt ...sem er metið með... fyrirlestri
    • skrifa bókmenntaritgerð á vönduðu máli þar sem samhengis í efni er gætt og farið er að reglum um meðferð heimilda ...sem er metið með... ritgerð
    • túlka valin ljóð og átta sig á byggingu þeirra ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófi
    • gera sér grein fyrir grunnatriðum í setningafræði íslenskrar tungu ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófi
    • tjá sig um íslenskar mállýskur ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófi
    • axla ábyrgð á eigin námi ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
    • taka virkan þátt í kennslustundum ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
    • beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópvinnu ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
    • tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
    • tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina.
    Gert er ráð fyrir leiðsagnarmati í áfanganum en það byggir á stöðugri endurgjöf kennarans um frammistöðu nemandans. Meðal námsmatsþátta verður: bókmenntafyrirlestur, stutt ritgerð, ýmiss konar verkefni (bæði munnleg og skrifleg, einstaklings- og hópverkefni), skriflegt próf í lok annar og mat á undirbúningi og þátttöku nemandans í kennslustundum á önninni.