helstu forrit í ritvinnslu, netnotkun, persónuupplýsingar, skipulag gagna
Samþykkt af skóla
2
5
AN
Í áfanganum er leitast við að búa nemendur undir frekara nám og/eða krefjandi störf á vinnumarkaði. Nemendur fá þjálfun í að meðhöndla texta og töluleg gögn, móta þau og setja fram á læsilegan og/eða myndrænan hátt.
UPPL1FR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
öllum helstu grunnaðgerðum í helstu forritum til miðlunar á texta og tölulegum gögnum
samþættingu gagna milli mismunandi forrita
upplýsinga- og menningarlæsi og mikilvægi þess
gagnagrunnum og mikilvægi þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
öllum helstu grunnaðgerðum í helstu forritum til miðlunar á texta og tölulegum gögnum
helstu grunnaðgerðum í gagnagrunni
upplýsinga- og menningarlæsi og átti sig á mikilvægi þess
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna með allar helstu grunnaðgerðir í tengslum við texta og töluleg gögn, móta þau og setja fram á læsilegan og/eða myndrænan hátt
meta, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt
átta sig á mikilvægi menningarlæsis í tengslum við alþjóðasamskipti
vinna með grunnaðgerðir í gagnagrunnum
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.