Allir helstu beinagrindarvöðvar líkamans. Uppbygging vöðvafrumu, helstu atriði í vöðvasamdrætti og orkumyndun vöðva. Staðsetning, útlit, upptök og festur helstu vöðva líkamans ásamt því að þekkja hlutverk þeirra og latínuheiti. Nemandi kunni skil á algengustu tegundum vöðvaójafnvægis í líkamanum og leiðir til að bregðast við því, þekki helstu tegundir meiðsla á liðum og vöðvum líkamans. Farið er yfir bein líkamans, uppbygging mismunandi liðamóta og hreyfingar beina út frá þeim. Áhersla er lögð á tengingu við umhverfi og reynsluheim nemenda, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
LÍFF2LK05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu vöðvum líkamans, upptökum þeirra og festu
vöðvasamdrætti, vöðvaítaugun og orkuvinnslu vöðva
helstu beinum líkamans, heiti þeirra og staðsetningu
mismunandi liðagerðum og hreyfingum þeirra
helstu lögmálum hreyfifræðinnar
helstu meiðslum á vöðvum og liðamótum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skoða helstu vöðva líkamans, sýna hvar þeir eru og hvaða hreyfingar þeir orsaka
skoða hvað orsakar vöðvaójafnvægi í líkamanum
skoða hvað orsakar helstu meiðsli á vöðvum og liðamótum
beita réttri tækni í starfi, leik og daglegu lífi
lesa fræðilegan texta sem tengist viðfangsefnum áfangans
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina og útskýra hreyfingu helstu vöðva líkamans út frá legu, upptökum og festu
greina frá staðsetningu og heitum helstu beina líkamans.
greina frá helstu liðamótum líkamans og rökstyðja hvaða hreyfingar þau leyfa
nýta hreyfifræðilögmál til að útskýra helstu hreyfingar líkamans
leiðrétta vöðvaójafnvægi og draga úr líkum á meiðslum á vöðvum og liðamótum
útskýra vöðvavinnu í ákveðnum hreyfingum, teygjum og kyrrstöðu
greina mun á réttri og rangri líkamsbeitingu
greina og útskýra slæma líkamsstöðu
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
greina, hagnýta og meta upplýsingar í margskonar formi (töluðu, rituðu eða myndrænu)
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.