Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur verði enn betur læsir á flóknari texta. Þeir fá þjálfun í að auka hagnýtan orðaforða og tileinka sér hann. Nemendur eru þjálfaður í að tjá sig skýrt í riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla verður lögð á að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð og nemendur hvattir til að nýta sér ýmis hjálpargögn, bæði á Netinu og í bókum. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að stærri ritunarverkefnum og viðameiri verkefnum sem snúa að menningarheimi enskumælandi landa með samanburði við íslenska menningu. Lesin eru bókmenntaverk úr hinum enskumælandi menningarheimi.
Fimm fein. í ensku á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað og geti tengt þau eigin samfélagi og menningu
orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins, þ.m.t. orðasamböndum og þverfaglegum orðaforða
notkun tungumálsins til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins bæði munnlega og skriflega
helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls, s.s greinamerkjasetningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa margs konar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir því hverrar gerðar textinn er
taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi
tjá sig skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér og undirbúið
skrifa margs konar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá