Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1424759407.36

    Spænska 1
    SPÆN1AG05
    22
    spænska
    evrópski tungumálaramminn, grunnur, stig a1
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Þar sem þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, framsögn, hlustun og ritun í samræmi við Evrópska tungumálarammann. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu spænskumælandi landa. Lögð er áherslu á að nemendur geri ljós á eigin ábyrgð í málanáminu og átti sig á mikilvægi eigin frumkvæðis og vinnu.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum spænska málkerfisins
    • menningu, samskiptavenjum og siðum spænskumælandi landa og þjóðanna þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
    • geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið kveðjur og kurteisisávörp
    • lesa og greina orð og mjög einfaldar setningar úr daglegu lífi
    • taka þátt í einföldum samræðum og tjá sig um efni sem hann þekkir
    • tjá sig um sjálfan sig, fjölskyldu sína og atburði daglegs lífs með því að beita grunnorðaforða tungumálsins
    • skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hlusta á og greina einfalt talað mál um sjálfan sig og nánasta umhverfi og draga viðeigandi ályktanir
    • rökstyðja og bera saman notkun á einföldum setningum yfir athafnir dagslegs lífs
    • leggja grunn að einföldum samræðum þannig að hann rökstyðji, spyrji og svari einföldum spurningum um kunnug málefni
    • draga ályktanir og nota einföld orðasambönd og setningar til þess að segja frá búsetu sinni og fólki sem hann þekkir
    • skipuleggja frásögn og rökstyðja orðaval í skapandi skrifum
    Fjölbreytt námsmat endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum. Fyrri hluti námsmats er í formi símats, sem byggir á kennara-, sjálfs- og jafningjamati á virkni og verkefnaskilum nemenda. Þar sem færniþættir lesskilningur, hlustun, tal og ritun, auk málfræði eru metnir. Síðari hluti námsmats er í formi lokaprófs í lesskilningi, ritun og málfræði.