Helstu viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áhersla er lögð á að bæta færni nemandans í tali, ritun, lesskilningi og hlustun. Orðaforði sem tengist nánasta umhverfi nemandans er aukinn og ný málfræðiatriði lögð inn. Menningu og staðháttum þýskumælandi landsvæða eru fléttuð inn í námið. Áfanginn ætti að skila nemendum upp á stig A2 evrópska viðmiðunarrammans fyrir tungumál.
ÞÝSK1PL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
helstu grundvallarþáttum málkerfisins: framburði, áherslum og hljómfalli
menningu, samskiptavenjum og siðum þýskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um hversdagsleg efni þegar talað er hægt og skýrt
taka þátt í einföldum samræðum um þekkt efni og bjarga sér við hversdagslegar aðstæður og geta spurt og svarað spurningum í þeim tilgangi
skilja lykilatriði í stuttum textum, leiðbeiningum og einföldum munnlegum fyrirmælum
tjá sig á einfaldan hátt um viðhorf, tilfinningar og liðna atburði
segja einfalda sögu, lýsa liðnum atburðum, reynslu og persónum í stuttu máli með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
skrifa stutta texta í nútíð og núliðinni tíð, t.d. dagbók, skilaboð, boðskort, samtöl o.fl.
afla sér hagnýtra upplýsinga sem tengjast daglegu lífi
beita flóknari málfræðireglum en í undanfara
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt eða taka þátt í samræðum um tiltekin málefni sem krefjast aukins orðaforða á viðeigandi máta eftir aðstæðum
skilja talað mál um kunnugleg efni
skilja meginþráðinn í lengri og þyngri textum með algengum orðaforða
geta dregið ályktanir og greint upplýsingar í töluðu máli og í textum
geta metið eigið vinnuframlag og kunnáttu
tileinka sér aga, metnað og jákvætt viðhorf til þýskunámsins og öðlast trú á eigin getu
Námsmat er útfært í kennsluáætlunum í samræmi við skólanámsskrá.