Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1424939189.57

    Algebra, föll og gröf
    STÆR1AF03(11)
    None
    stærðfræði
    algebra, föll, gröf
    í vinnslu
    1
    3
    11
    Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Fjallað er um bókstafareikning, jöfnur, hnitakerfið, beina línu og prósentur.
    Grunnskólapróf
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • náttúrlegum, heilum og ræðum tölum og aðgerðum á þeim
    • undirstöðuatriðum algebru
    • lausnum á jöfnum
    • óuppsettum jöfnum
    • reikniformúlum
    • talnahlutföllum, einingaskiptum, skiptireikningi, prósentum og vöxtum
    • rétthyrndu hnitakerfi í sléttum fleti
    • jöfnu beinnar línu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota hlutföll og brot í útreikningum
    • reikna prósentur
    • skilja samhengi talna og bókstafareiknings (algebru), s.s. að liða og þátta
    • leysa jöfnur með einni óþekktri stærð og tveimur óþekktum breytistærðum
    • nota rétthyrnt hnitakerfi til að lýsa samhengi breytistærða og til að setja fram jöfnu fyrir beina línu í hnitakerfi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar og vinna á skipulegan hátt ...sem er metið með... verkefnum/prófum
    • útskýra hugmyndir sínar og verk ...sem er metið með... verkefnum/prófum
    • fylgja fyrirmælum sem gefin eru ...sem er metið með... verkefnum/prófum
    • lesa úr stærðfræðilegum upplýsingum ...sem er metið með... verkefnum/prófum
    • beita skipulegum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu ...sem er metið með... verkefnum/prófum.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem byggir á því að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu. Námsmat byggist á verkefnum sem nemendur vinna í kennslustundum og utan þeirra, skriflegum prófum sem lögð eru fyrir nemendur (bæði kaflaprófum yfir önnina og yfirlitsprófi í lok hennar) auk virkni nemenda í kennslustundum.