kristin menning, menning fornaldar, þróun evrópskar menningar
Samþykkt af skóla
2
5
AV
Í þessum áfanga eru valin tímabil og svið í menningarsögu Evrópu tekin til skoðunar í ljósi ýmissa þátta, t.d. myndlistar, byggingarsögu, bókmennta, heimspeki, hugarfars og félagsgerðar samfélaga. Nemandinn kynnir sér nokkra frumtexta, skoðar samtímamyndefni ásamt því að tileinka sér fræðilega og listræna umfjöllun um efnið. Einnig verður nemandinn þjálfaður í heimildarýni af ýmsu tagi, rökhugsun og sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum.
SAGA2SÍ05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tímabilaskiptingu menningarsögunnar frá upphafi til nútímans
helstu hugtökum og persónum sem tengjast þeim viðfangsefnum sem fjallað verður um í áfanganum
tegundum heimilda og helstu vinnubrögðum við heimildaleit og heimildanotkun
samhengi sögunnar og hvernig fortíðin birtist okkur og lifir í nútíðinni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með heimildir
tjá sig um viðfangsefni menningarsögunnar
vinna jafnt sjálfstætt og með öðrum að viðfangsefnum
nota ólík miðlunarform til að koma þekkingu sinni á framfæri
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta söguleg fyrirbæri út frá forsendum hvers tíma og sjá tengsl þeirra við nútímann
tjá sig um menningarsöguleg álitamál
deila þekkingu sinni með öðrum
sýna frumkvæði og skapandi hugsun
beita gagnrýninni hugsun á viðfangsefni sögunnar
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.