Evrópusamstarf, stjórnmálastefnur, vald og lýðræði, íslensk stjórnmál
Samþykkt af skóla
2
5
AV
Helstu hugtök stjórnmálafræðinnar kynnt. Nemandinn lærir um grundvallarstjórnmálastefnur 19. aldar sem áttu eftir að móta flokkakerfi stjórnmála vestrænna ríkja, þ.m.t. Ísland. Kynntar verða kenningar um lýðræði, stjórnkerfi, kosningahegðun, mismunandi kjördæmaskipan, flokkaskipulag og samspil þar á milli. Saga og þróun íslenskra stéttastjórnmálaflokka er rakin frá upphafi til nútímans. Nemandinn metur þróun íslenskra stjórnmála út frá þeim hugtökum sem hann lærir og tengir sögu íslenskra stjórnmálaflokka við helstu hugmyndakerfin. Einnig verður gerð grein fyrir alþjóðlegri samvinnu ríkja eftir síðari heimsstyrjöld, m.a. verður aðdraganda og þróun Evrópusambandsins lýst, uppbyggingu og stjórnkerfi þess og jafnframt verður leitast við að varpa ljósi á umræðu dagsins í dag um kosti og galla aðildar að ESB. Áhersla á að tengja námsefnið reynsluheimi nemanda, auka víðsýni hans, rökhugsun og sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
FÉLA2FA05 og SAGA2SÍ05 eða sambærilegir áfangar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar
grundvallarstjórnmálastefnum sem mótað hafa flokkakerfi vestrænna ríkja og víðar, þ.m.t. það íslenska
mismunandi kenningum um lýðræði, vald, kosningakerfi og fleiri viðfangsefnum stjórnmálafræðinnar
sögu og þróun íslenskra stéttastjórnmála frá upphafi þeirra til nútímans
alþjóðlegri samvinnu eftir síðari heimsstyrjöld, einkum það sem snýr að Íslandi
samvinnu Evrópuríkja eftir síðari heimsstyrjöld, aðdraganda Evrópusambandsins og stofnanauppbyggingu þess
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar í námi og daglegri umræðu
ræða og rita um viðfangsefni stjórnmálafræðinnar af þekkingu og víðsýni
nota þekkingu sína til áframhaldandi náms sem og í almennri umræðu um samfélagsleg málefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja stefnu og sögu íslenskra stjórnmálaflokka við helstu hugmyndakerfi alþjóðlegra stjórnmála
rökræða og útskýra fyrir öðrum ýmis hugtök og viðfangsefni stjórnmálafræðinnar
láta sig varða ýmis samfélagsleg álitaefni í lýðræðislegu þjóðfélagi
skilja mikilvægi stjórnmála og stjórnmálaþátttöku í lýðræðislegu þjóðfélagi
beita gagnrýninni hugsun á viðfangsefni stjórnmálafræðinnar
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.