Í þessum áfanga er lögð áhersla á hugmyndafræði og gildi sem liggja samskiptum fagfólks til grundvallar. Fjallað verður lítillega um helstu kenningar í sögu siðfræðinnar og farið verður í ákveðin grunnhugtök úr siðfræði heilbrigðisþjónustunnar t.d. sjálfræði, velferð, faglegt forræði, skyldur fagfólks og réttindi skjólstæðinga. Áhersla er lögð á siðfræði heilbrigðisþjónustu og samskipti skjólstæðinga og heilbrigðisstétta. Siðareglur þessara fagstétta skoðaðar sem og álitamál siðfræðinnar. Áhersla á að tengja námsefnið reynsluheimi nemanda og auka víðsýni hans og rökhugsun.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim gildum sem liggja mannlegri breytni til grundvallar
helstu hugtökum, markmiðum og aðferðum siðfræðinnar
helstu skyldum fagfólks og réttindum skjólstæðinga
skilyrðum siðferðislegs sjálfræðis og réttmæti faglegs forræðis
forsendum réttlátrar heilbrigðisþjónustu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita siðferðilegum hugtökum á markvissan hátt í ræðu og riti
skoða siðferðileg álitamál út frá fleiri en einu sjónarhorni bæði í ræðu og riti
greina og leysa úr siðferðisvanda
greina frá helstu fræðihugmyndum í heilbrigðisþjónustu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
heimfæra þær fræðihugmyndir og hugtök sem fjallað var um í áfanganum yfir á einstök dæmi úr raunveruleikanum
rökstyðja hin ýmsu sjónarmið á siðferðilegum álitamálum
tengja fræðihugmyndir sem fjallað er um í áfanganum við daglegt líf
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.