Fjallað er um félagssálfræði og helstu viðfangsefni hennar, m.a. staðalmyndir, fordóma, viðhorf, aðdráttarafl o.fl.. Jafnframt er fjallað um áhrif félagslegs umhverfis á hegðun, t.d. á hegðun stórra hópa, hjálpsemi og hlýðni við yfirvöld. Auk umfjöllunar um viðfangsefni félagssálfræði er fjallað um persónuleikasálfræði og það sem helst er vitað um einstaklingsmun. Áhersla er lögð á þjálfun vinnubragða hvað varðar sálfræðilegar rannsóknir og að nemendur geti sett niðurstöður rannsókna fram með skipulegum hætti í rannsóknarskýrslu.
SÁLF2GG05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum og kenningum sálfræði sem tengjast einstaklingsmun og persónueinkennum
mótun og breytingu viðhorfa
staðalmyndum og fordómum
áhrifum félagslegra aðstæðna á hegðun, s.s. hjálpsemi og hlýðni
framkvæmd sálfræðilegra rannsókna og skipulegri framsetningu niðurstaðna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
vinna úr niðurstöðum sem aflað er með rannsókn
setja niðurstöður tilrauna og rannsókna fram með skipulegum hætti í skýrslu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
afla upplýsinga, leggja mat á þær, greina og setja í samhengi
nýta fræðilegan texta á íslensku og á erlendu tungumáli
afla gagna með því að framkvæma rannsókn
skipuleggja og framkvæma rannsóknir
setja niðurstöður rannsókna fram með skýrum og skipulegum hætti
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.