Lokaáfangi þar sem virki orðaforðinn er notaður markvisst í tjáningu og aukið við hann. Haldið er áfram að vinna með framburð, skilning og tjáningu, þar sem tal, hlustun og ritun verða umfangsmeiri og flóknari. Enn meiri áhersla verður lögð á að tjá sig skriflega og munnlega um ýmis efni með hagnýtum orðaforða. Nemandinn öðlast dýpri þekkingu á tungumálinu og ýmsum afbrigðum þess. Nemandanum er gert að tileinka sér nýjan orðaforða sem nýtist í að tjá sig, eiga samtöl og vera sjálfbjarga við sérstakar aðstæður. Saga spænskumælandi landa skoðuð með sérstöku tilliti til lýðræðis og mannréttinda. Auknar kröfur um eigin ábyrgð á náminu og sjálfstæð vinnubrögð eru meðal lykilþátta áfangans. Nemandanum er kennt að nýta sér upplýsingatækni og önnur hjálpargögn í náminu.
SPÆN1HT05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
málkerfinu og réttri notkun þess
orðaforða sem hæfir hæfniviðmiðum áfangans
tungumálinu og ýmsum afbrigðum þess, t.d. daglegu máli og mállýskum
sögu og venjum í þeim löndum þar sem tungumálið er talað
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig skriflega og munnlega um ýmis efni t.d. úr fjölmiðlum
lesa texta um efni sem hann þekkir og tileinka sér ný orð í textanum
segja einfalda sögu og lýsa liðnum atburðum og reynslu í stuttu máli
skilja fyrirmæli, kveðjur og kurteisisávörp
skrifa stutta texta í nútíð, framtíð og liðinni tíð
skilja tölur og tímasetningar
beita tungumálinu í ræðu og riti
nota ýmiss hjálpargögn þegar unnið er með tungumálið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja talað mál um kunnugleg og ný efni
skilja meginatriði texta
nýta viðeigandi mál- og samskiptavenjur við mismunandi aðstæður
vera sjálfbjarga við sérstakar aðstæður
miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
spyrja og svara einföldum spurningum
segja frá daglegum athöfnum
velja námsaðferðir við hæfi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.