Í áfanganum er verið að kynna útivist og hvernig hún nýtist við líkamsþjálfun. Kynnt verða fjölbreytt form útivistar eins og göngu- og hjólaferðir, skíði og fleira. Farið yfir leiðir, eðli hreyfingar og útbúnað sem er mikilvægur fyrir útivist.
Í áfanganum er megináhersla lögð á að nemendur fái tilfinningu fyrir áhrifum hreyfingar á líðan sína, andlega og líkamlega. Farið er í gegnum æfingar sem þjálfa upp styrk og þol.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
æskilegum aðferðum til þjálfunar líkamans
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta
stunda fjölbreytta útivist og hreyfingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.