Fjallað er um barnabókmenntir í víðum skilningi, svo sem myndabækur, sögur, ljóð, ævintýri og teiknimyndir.
Nemendur kynnast einkennum, formi, útbreiðslu, vinsældum og kröfum sem gerðar eru til barnabókmennta. Gert er ráð fyrir að nemendur lesi allnokkra mismunandi bókmenntatexta, auk fræðilegrar umfjöllunar um barnabókmenntir.
Gert er ráð fyrir ýmiss konar verkefnavinnu, verklegri, munnlegri og skriflegri. Farið er fram á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
Bókmenntir/ritun: Nemendur kynna sér ýmis verk og/eða kafla úr þeim; sögum, ljóðum, leikverkum og fjölmiðlum (netmiðlum). Lögð er áhersla á persónusköpun, framsetningu, túlkun og endurspeglun þjóðfélagsins. Nemendur vinna ýmiss konar verkefni sem kynnt eru í töluðu og rituðu máli.
Málnotkun og málsnið: Nemendur athuga málfar og málnotkun í barnaefni og bera saman við annars konar texta.
Framsögn: Nemendur kynna niðurstöður sínar. Gert er ráð fyrir að allir nemendur taki þátt í umræðum og geti rökstutt mál sitt.
Lágmark 7 á grunnskólaprófi eða ÍSLE1DE05/ÍSLE1LR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
inntaki og einkennum þeirra verka sem lesin eru
barnabókmenntum í sögulegu ljósi
mismunandi frásagnaraðferð og framsetningu í barnabókmenntum
tengslum barnabókmennta við siðferðisþroska
samspili barnabókmennta, samfélags og menningar
málfari og orðaforða barnabókmennta
innrætingu og túlkun barnabókmennta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita gagnrýninni hugsun við vinnslu verkefna þar sem skoðanir hans koma fram
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og tengja við eigin skoðanir
flytja af nokkru öryggi niðurstöður sínar frammi fyrir hópi
lesa sér til gagns bókmenntaverk ásamt fræðitextum um barnabókmenntir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna skapandi og greinandi verkefni í tengslum við barnabókmenntir og þá fræðilegu umfjöllun sem lögð er til grundvallar í áfanganum
beita skýru og lýtalausu máli í ræðu og riti
taka þátt í málaefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efni og komast að niðurstöðu
túlka texta barnabókmennta og greina merkingu undir yfirborðinu
bera barnabókmenntir saman við aðrar bókmenntagreinar
meta uppeldisgildi barnabókmennta út frá ýmsum sjónarmiðum og gera sér grein fyrir þeim forsendum sem lagðar eru til grundvallar matinu