Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425295636.34

    Yndislestur
    ÍSLE2YL05
    42
    íslenska
    Yndislestur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur lesa fjölbreyttar bókmenntir sér til yndis og fróðleiks. Þeir velja af lista bókmenntaverk sem höfða til þeirra og setja sjálfir saman lesáætlun annarinnar. Ritun: Nemendur rita lesdagbók/vangaveltubók þar sem þeir hugleiða bókmenntaverkin og túlka út frá eigin viðmiðum og gildum. Lestur: Nemendur lesa 6 til 14 bækur, allt eftir því hvers konar bækur þeir hafa valið á listann sinn. Þeir velja eitt verk til að leita heimilda um og kynna sér. Sérstaka umfjöllun um verkið og fræðigreinina á að vinna í lesdagbók. Málnotkun: Nemendur þjálfast í að fjalla um og kynna viðfangsefni sín munnlega. Framsögn: Nemendur gera grein fyrir öllum bókmenntaverkum munnlega í samtali við kennara.
    7 á grunnskólaprófi eða ÍSLE1DE05/ÍSLE1LR05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • inntaki og viðfangsefnum þeirra bókmennta sem hann les
    • grunnhugtökum í bókmenntafræði
    • orðaforða sem nægir til að skilja verkin sem lesin eru
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til gagns og gamans bókmenntaverk jafnt sem nytjatexta og fjalla um inntak þeirra
    • beita gagnrýninni hugsun og koma skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
    • skilja og nota algeng stílbrögð í tal- og ritmáli
    • draga saman og nýta upplýsingar úr lesnum textum
    • flétta saman eigin viðhorf og ályktanir á heiðarlegan hátt
    • endursegja og kynna af nokkru öryggi bókmenntir sem lesnar eru
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
    • nýta orðfæri lesinna bókmennta til að styrkja eigin málfærni
    • beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu
    • taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
    • túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
    Símat