Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425296264.24

    Laxness
    ÍSLE3LX05
    55
    íslenska
    Halldór Laxness
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist verkum Halldórs Laxness. Nemendur lesa og kynna sér skáldsögur, smásögur, ljóð, leikrit og greinar eftir hann og vinna fjölbreytt verkefni í ræðu og riti.
    10 einingar á 2. þrepi í íslensku
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
    • helstu einkennum íslensks máls sem nýtast honum í ræðu og riti
    • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
    • inntaki og einkennum nokkurra bókmenntaverka Halldórs Laxness
    • þróun Halldórs Laxness sem höfundar
    • helstu bókmenntastefnum sem tengjast viðfangsefninu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna verkefni þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og vandaðan hátt í blæbrigðaríku máli
    • ganga frá texta til birtingar
    • veita og nýta uppbyggilega gagnrýni
    • skilja og nota stílbrögð og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
    • nýta sköpunargáfu við vinnslu skapandi verkefna
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • túlka og bera saman bókmenntaverk og setja þau í sögulegt samhengi
    • greina einkenni ákveðinna strauma í bókmenntaverkum
    • greina og túlka merkingu sem ekki liggur á yfirborðinu
    • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta
    • velja ritstíl og framsetningu sem hæfir aðstæðum og viðtakendum
    • leggja mat á og efla eigin málfærni og annarra
    • tjá rökstudda afstöðu
    • taka virkan þátt í umræðum
    Símat/leiðsagnarmat þar sem byggt er á fjölbreyttu námsmati