Í áfanganum lærir nemandinn að setja upp í vefgrind og vefa myndvef af stærðinni 25 x 45 cm. Nemandinn lærir grunnaðferðir í myndvef eins og tengingar, skálínur, bogalínur, einfalda litablöndun og notkun mismunandi þráða og notar gróft band í uppistöðu, um það bil 2 þræði á cm. Lögð er áhersla á að nemandinn kynnist menningarlegu gildi myndvefnaðar ásamt fagtungumáli og hugtökum sem notuð eru í greininni. Áhersla er lögð á að auka víðsýni nemandans, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
HÖTE2HU05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
menningarlegu gildi myndvefnaðar, sérkennum og sögu
myndvefnaði í íslenskri og alþjóðlegri listasögu
mismunandi myndvefnaðaraðferðum
mismunandi tækjum og tólum sem tilheyra vefnaði
fagtungumáli og þeim hugtökum sem notuð eru í myndvefnaði
grunnaðferðum eins og tengingum, skálínum og bogalínum
notkun mismunandi þráða
litablöndun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp í vefgrind fyrir myndvef
vinna hugmynda- og skissuvinnu fyrir vefnaðarmyndverk á sjálfstæðan og skapandi hátt
vefa myndvef a.m.k. í stærðinni 25 x 45 cm
nota tengingar, vefa skálínur og bogalínur
blanda liti á einfaldan hátt
nota mismunandi þráð
beita líkamanum á réttan hátt við vinnu sína
beita skapandi aðferðum í myndvefnaði t.d. með lita- og efnisnotkun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér verkkunnáttu í myndvefnaði
koma mynd yfir í vefnað
sýna sjálfstæð vinnubrögð við myndvefnað a.m.k. að stærðinni 25 x 45 cm.
tjá sig um helstu myndvefnaðarverk, innlend og erlend
vera fær um að taka þátt í uppbyggilegri og frjórri samræðu um verk sín og annarra í vefnaði
ígrunda og rökstyðja lita- og efnisval sitt með tilliti til tækni og fagurfræði
nýta styrkleika sína í verkefnavali
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.