Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425477387.93

    Grunnþættir í almennri líkams- og heilsurækt 1
    ÍÞRÓ1GL03(11)
    95
    íþróttir
    grunnþættir í almennri líkams- og heilsurækt
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    11
    Áfanginn er bæði verklegur og bóklegur. Í verklega hlutanum er lögð áhersla á grunnþætti þols, styrktaræfingar og liðleika. Við þjálfun þols eru fjölbreyttar aðferðir notaðar, s.s. útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun, leikir og fjölbreyttar íþróttagreinar. Í styrktarþjálfun eru ýmsar æfingar notaðar, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd og lyftingar í tækjasal. Við þjálfun liðleika er áhersla lögð á teygjuæfingar í lok æfinga. Við þjálfun allra framangreindra þátta er leitast við að miða æfingar við áhuga og getu hvers nemanda. Í bóklega hlutanum er fjallað um heilsu og heilbrigðan lífsstíl. Rætt er um mikilvægi hreyfingar hjá öllum aldurshópum, þó sérstaklega hjá fólki á framhaldsskólaaldri. Fjallað er um þrjú algengustu þjálfunarformin; þol, styrk og liðleika og hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers forms ræddar. Rætt er um uppbyggingu hreyfingarlotu með áherslu á áhrif upphitunar og niðurlags á líkamann. Fjallað er um áhrif vímuefna á heilsu og líkamlegt form einstaklinga. Í áfanganum er jafnframt unnið með verkefnið „Heilsumarkmiðin mín“ þar sem nemendur fá markvissa fræðslu um hreyfingu, mataræði, svefnvenjur og andlega líðan og setja sér raunhæf og mælanleg markmið (SMART-markmið) í tengslum við þessa þætti.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • almennum ávinningi af heilbrigðum lífsstíl
    • mikilvægi hreyfingar hjá sínum aldurshópi
    • mikilvægi upphitunar fyrir áreynslu og niðurlags eftir áreynslu
    • fjölbreyttum þjálfunaraðferðum sem taka til þols, styrks og liðleika
    • heppilegri uppbyggingu hreyfingarlotu (tímaseðlagerð/æfingaráætlun)
    • heilbrigðum svefnvenjum fyrir sinn aldurshóp
    • heilsusamlegu mataræði
    • lífstílstengdum atriðum sem hafa jákvæð áhrif á andlega líðan.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta áhuga hans og getu
    • reikna út æfingarpúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
    • beita aðferðum til að mæla þol, styrk og liðleika
    • búa til skipulagða og áhugaverða hreyfingarlotu (tímaseðil/æfingaráætlun)
    • setja sér SMART-markmið í tengslum við hreyfingu, mataræði, svefnvenjur og andlega líðan eftir því hvað á við um hann sjálfan.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • viðhalda eða bæta eigin líkamshreysti ...sem er metið með... mælingum á frammistöðu nemandans í kennslustundum
    • nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu inn í daglegt líf sitt ...sem er metið með... æfingaáætlun
    • gera sér grein fyrir mikilvægi heilbrigðra svefnvenja, hreyfingar og góðs mataræðis á andlega og líkamlega heilsu ...sem er metið með... verkefnum í tengslum við „Heilsumarkmiðin mín“.
    Gert er ráð fyrir leiðsagnarmati í áfanganum en það byggir á stöðugri endurgjöf kennarans um frammistöðu nemandans. Meðal námsmatsþátta verða: mælingar á frammistöðu nemandans í æfingum sem varða þol, styrk og liðleika og verkefni sem nemandi vinnur í tengslum við verkefnið Heilsumarkmiðin mín (SMART-markmið). Áhersla er lögð á góða mætingu í kennslustundir.