Áfanginn er bæði verklegur og bóklegur. Áhersla er lögð á lífstílsbreytingar. Í verklega hlutanum er lögð áhersla á grunnþætti þols, styrktaræfingar og liðleika. Við þjálfun þols eru fjölbreyttar aðferðir notaðar, s.s. útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun, leikir og fjölbreyttar íþróttagreinar. Í styrktarþjálfun eru ýmsar æfingar notaðar, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd og lyftingar í tækjasal. Við þjálfun liðleika er áhersla lögð á teygjuæfingar í lok æfinga. Við þjálfun allra framangreindra þátta er leitast við að miða æfingar við áhuga og getu hvers nemanda. Í bóklega hlutanum er fjallað um heilsu og heilbrigðan lífsstíl. Nemendur fræðast um líkamleg og sálræn áhrif reglulegrar og skipulegrar líkamsþjálfunar og ábyrgð einstaklingsins á eigin líkama. Fjallað er um markmiðssetningu, bæði til lengri og skemmri tíma, þar sem nemendur gera eigin þjálfunaráætlun í samræmi við þau markmið sem þeir setja sér. Þjálfunaráætlunin byggir á þeirri þekkingu sem nemendur hafa aflað sér um þol, styrk og liðleika í fyrri íþróttaáfanga. Áfram er fjallað um mikilvægi hreyfingar hjá öllum aldurshópum, sérstaklega hjá fólki á framhaldsskólaaldri. Fjallað er um þrjú algengustu þjálfunarformin; þol, styrk og liðleika, og hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers forms ræddar. Rætt er um uppbyggingu hreyfingarlotu með áherslu á áhrif upphitunar og niðurlags á líkamann. Fjallað er um áhrif vímuefna á heilsu og líkamlegt form einstaklinga. Í áfanganum er jafnframt unnið áfram með verkefnið „Heilsumarkmiðin mín“ sem byrjað var á í ÍÞRÓ1GL03(11).
ÍÞRÓ1GL03(11)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
alhliða líkams- og heilsurækt
æfingum og leikjum sem viðhalda og bæta tækni íþróttagreina
styrkjandi og mótandi æfingum fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans
skipulagningu eigin þjálfunar
forsendum og áhrifum þjálfunar á eigin líkama og heilsu
orkuefnunum kolvetni, próteinum og fitu
heilsusamlegu mataræði
heilbrigðum svefnvenjum fyrir sinn aldurshóp
áhrifum lífsstíls á heilsu á andlega og líkamlega sjúkdóma
uppbyggingu æfinga og tímaseðla.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér ýmsar leiðir til að stunda styrktarþjálfun, þolþjálfun og bæta liðleika sinn
halda áfram SMART-markmiðssetningu í tengslum við hreyfingu, mataræði, svefnvenjur og andlega líðan eftir því hvað á við um hann sjálfan.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina hvaða þættir í eigin lífsstíl hafa áhrif á andlega og líkamlega heilsu og breyta eigin lífsstíl ef þörf er á ...sem er metið með... verkefnum og þjálfunaráætlun yfir önnina
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem varða þjálfun á eigin líkama ...sem er metið með... með frammistöðu í kennslustundum
bæta eða viðhalda þoli, liðleika og styrk ...sem er metið með... mælingum á frammistöðu nemandans í þessum þáttum.
Gert er ráð fyrir leiðsagnarmati í áfanganum en það byggir á stöðugri endurgjöf kennarans um frammistöðu nemandans. Meðal námsmatsþátta verða: skrifleg verkefni, SMART-markmiðssetning, æfingaáætlanir og mælingar á frammistöðu nemandans í æfingum sem varða þol, styrk og liðleika. Áhersla er lögð á góða mætingu í kennslustundir.