Grunnþættir tungumálanáms þjálfaðir. Lögð er áhersla á rétta málnotkun, að nemendur geti tjáð sig í töluðu og rituðu máli og tekið þátt í samræðum. Nemendur lesa styttar skáldsögur, smásögur, fréttaefni og efni af Netinu. Hlustun og myndefni er notað sem efniviður í ýmiss konar æfingar. Enska er aðalmál í kennslustundum.
Einkunnir 4,5 eða lægra á grunnskólaprófi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hagnýtum orðaforða
menningu í löndum þar sem enska er töluð
helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs mál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tala um almenn efni og tjá sig af kurteisi
nota rétt mál í almennum samræðum
leita upplýsinga á Netinu á ábyrgan hátt
skilja talað mál um kunnugleg efni
lesa margs konar texta og beita viðeigandi lestraraðferðum
skrifa skýran texta um kunnuglegt efni
nýta sér uppflettirit og orðabækur, t.d. á netinu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig á skýran hátt um kunnugleg málefni og hugðarefni