Í áfanganum læra nemendur að hanna hlut úr tré, fullvinna hann frá grunni til afurðar. Nemendur teikna hlutinn og smíða hann. Nemendur fá þjálfun í hönnun og teikningu smíðahluta sem og meðferð verkfæra og trésmíðavéla. Nemendur öðlast innsýn í það hvernig smíðahlutir verða til.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hönnun hlutar úr tré.
útfærslu hlutarins.
meðferð trésmiðaáhalda.
meðferð trésmíðavéla.
meðferð yfirborðsefna.
ýmsum leiðum smíðasamsetninga.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera skissur og fullunnar vinnuteikningar af smíðahlut.
nota trésmiðaáhöld.
nota trésmíðavélar.
nota yfirborðsefni.
nota viðeigandi smíðasamsetningar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna smíðahlut og fullvinna hann frá hugmynd til afurðar.