Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425819596.24

    Íþróttameiðsl og skyndihjálp
    ÍÞRF3ÍM03
    2
    íþróttafræði
    Íþróttameiðsl og skyndihjálp
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Í áfanganum eru kenndar fyrirbyggjandi æfingar og mismunandi aðferðir við meðhöndlun íþróttameiðsla. Nemendur læra að bregðast við algengum íþróttameiðslum. Þeir læra undirstöðuatriði skyndihjálpar, þ. á m. grunnendurlífgun og notkun hjartastuðtækis, læsta hliðarlegu, að greina innvortis og útvortis áverka, að bregðast við bráðum veikindum og flutning slasaðra. Áfanginn er bóklegur.
    ÍÞRF2BV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skrefum skyndihjálparkeðjunnar.
    • helstu áverkaeinkennum og réttum viðbrögðum við þeim.
    • helstu einkennum bráðra veikinda og réttum viðbrögðum við þeim.
    • helstu íþróttameiðslum.
    • því hvernig best er að meðhöndla íþróttameiðsli.
    • helstu formum endurhæfingar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • sýna rétt viðbrögð við slysum.
    • meta ástand sjúkra og slasaðra.
    • veita skyndihjálp við slys og bráð veikindi.
    • veita skyndihjálp við íþróttameiðslum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • veita sálræna skyndihjálp.
    • endurlífga og beita sjálfvirku stuðtæki í neyðartilfellum.
    • binda um sár og flytja sjúkling til vegna yfirvofandi hættu.
    • setja sjúkling í læsta hliðarlegu og tryggja öryggi hans.
    • veita hjálp þegar iðkendur slasast við ástundun íþrótta.
    • leiðbeina iðkendum við meðhöndlun helstu íþróttameiðsla.
    • framkvæma og meta fyrirbyggjandi æfingar til að koma í veg fyrir íþróttameiðsli.