Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425895033.82

    Jarðsaga
    JARÐ3JS05(31)
    None
    jarðfræði
    jarðsaga
    í vinnslu
    3
    5
    31
    Í áfanganum er fjallað um landrek ákveðinna svæða, einstaka tíma í sögu jarðar, tilurð Íslands, m.a. út frá flekakenningunni, og þær breytingar sem orðið hafa á eldvirkni, lífríki og loftslagi á landinu. Kynntar eru kenningar um uppruna jarðar og aldursákvarðanir og lögð áhersla á að nemendur þekki nútímaaðferðir sem beitt er við rannsóknir á jarðsögunni. Fjallað er um þróun lífríkis, almennt og meðal einstakra hópa, þar á meðal mannsins. Kynntar eru kenningar um útdauða lífvera og einstök dæmi tekin, m.a. í tengslum við umfjöllun um loftslagsbreytingar, ísaldir og orsakir þeirra. Nemendur fá þjálfun í túlkun jarðlagasniða og lestri jarðfræðikorta.
    JARÐ2AJ05(21)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi kenningum um massadauða lífvera
    • helstu gerðum jarðmyndana hér á landi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • teikna einföld jarðlagasnið
    • nota jarðfræðikort.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera grein fyrir kenningum um uppruna og aldur jarðar ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófum
    • útskýra jarðsögutöfluna og segja frá einkennum hverrar aldar í sögu jarðar ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófum
    • fjalla um þróun lífríkis á jörðinni út frá völdum dæmum um þróun einstakra hópa lífvera ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófum
    • útskýra myndun jarðlaga og tengja við ástand umhverfis á myndunartíma þess ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófum
    • fjalla um ísaldir og kenningar um orsakir þeirra ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófum
    • gera grein fyrir jarðsögu Íslands með tilliti til flekareks, loftslags, jarðlaga, eldvirkni og lífríkis ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófum
    • fjalla um flekarek og skýra með tilliti til myndunar valina svæða á jörðinni ...sem er metið með... verkefnum og/eða prófum.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem byggist á því að nemandinn fái með skipulegum og reglulegum hætti upplýsingar frá kennara um hvernig hann stendur í náminu. Meðal námsmatsþátta eru ýmiss konar skrifleg verkefni, kaflapróf og lokapróf.