Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425979763.7

    Hreyfing í tveimur víddum, hringhreyfing, bylgjuhreyfing og hrörnun geislavirkra efna
    EÐLI3VB05(41)
    None
    eðlisfræði
    bylgjur og hreyfing, varmafræði
    í vinnslu
    3
    5
    41
    Í áfanganum er fjallað um gangfræði í tveimur víddum ásamt hringhreyfingu og sveiflu- og bylgjuhreyfingu og hrörnun geislavirkra efna. Í verkefnavinnu áfangans er lögð áhersla á nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og notkun formúla. Eins og í fyrri áfanga er lögð áhersla á að nemandinn geri tilraunir þar sem hann kynnist lögmálum eðlisfræðinnar af eigin raun og noti tölvur við mælingar og úrvinnslu, riti verkbók og kunni að skrifa skýrslu um tilraunir. Í áfangamarkmiðum eru tilgreind verkefni sem miðað er við að nemendur vinni í tengslum við efni áfangans.
    EÐLI2RF05(31) og STÆR3DF05(41)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þyngdarlögmáli Newtons og sambandi þess við 3. lögmál Keplers
    • sveiflum og bylgjum en í því felst að vita hvað einföld hrein sveifluhreyfing er
    • samliðun og bognum bylgna
    • ranghugmyndum um miðflóttakraft
    • alfa-, beta- og gammageislun
    • samruna tveggja léttra kjarna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita stærðunum hraða, hröðun og þyngdarhröðun
    • reikna falltíma og lárétta vegalengd sem hlutur fer ef honum er skotið með láréttum hraða úr ákveðinni hæð
    • reikna tíma hlutar á lofti og hversu langt hann fer þegar honum er skotið skáhallt upp með jöfnum hraða
    • reikna dæmi um afstæðan hraða
    • reikna þyngdarkraft sem verkar milli hluta, hraða hluta á braut um jörðu og reikistjarna á braut um sólu
    • reikna sveiflutíma, tíðni og hornhraða
    • teikna og gefa upp formúlu fyrir staðbylgju sem getur myndast í streng sem festur er í báða enda
    • lýsa bylgjubognun, eyðandi og styrkjandi samliðun og tilraun Youngs
    • reikna hraða hljóðs í gasi við mismunandi aðstæður
    • reikna styrk hljóðs sem fall af fjarlægð frá hljóðgjafa
    • umreikna milli hljóðstyrks og skynstyrks
    • teikna og lýsa röntgenlampa.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera grein fyrir hreyfingu hluta í tveimur víddum ...sem er metið með... verkefnum/prófum
    • gera grein fyrir hringhreyfingu ...sem er metið með... verkefnum/prófum
    • útskýra og beita stærðunum radían, snertihraða, snertihröðun, miðsóknarhröðun og miðsóknarkrafti ...sem er metið með... verkefnum/prófum
    • útskýra hvað hljóð er ...sem er metið með... verkefnum/prófum
    • gera tilraun þar sem sveiflur strengs eru rannsakaðar ...sem er metið með... skýrslu
    • útskýra alfa-, beta- og gammahrörnun ...sem er metið með... verkefnum/prófum.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem byggist á því að nemandinn fái með skipulegum og reglulegum hætti upplýsingar frá kennara um hvernig hann stendur í náminu. Meðal námsmatsþátta er skýrslugerð í kjölfar verklegra æfinga, heimadæmi, kaflapróf og lokapróf.