Undirbúningur fyrir starfsþjálfun í hestamennsku, fyrri hluti
VINU2FH02
1
Undirbúningur fyrir starfsþjálfun í hestamennsku
Fyrri hluti
Samþykkt af skóla
2
2
Meginviðfangsefni áfangans er að undirbúa nemendur fyrir starfsþjálfunaráfangann VINH2FH10. Nemendum er kennt að fylla út vinnuskýrslur um unna verkþætti, fylla út gátlista um heilbrigði hesta, t.d. fóðurástand, holdafar, ástand fóta og járninga á hrossum. Einnig er farið yfir gerð dagbókar. Farið er í helstu verkþætti á hestahalds.
HEST1GR05, REIM1GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu verkþáttum starfsnema á starfsnámsstað
viðteknum starfsaðferðum og vinnulagi sem nýst getur í hestamennsku
starfs- og ábyrgðarsviði starfsnema á starfsnámsstað
hirðingu og fóðrun hrossa
mismunandi vinnuaðferðum, nálgun við þjálfun hesta
mati á andlegu og líkamlegu heilbrigði hrossa
grunnþjálfun hesta
hringteymingum og vinnu við hönd
markvissum vinnubrögðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag á vinnustað.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Fylgja leiðbeinandi verklagsreglum á vinnustað
Mæta þarf í alla hluta áfangans til að standast hann.