Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1426255775.19

    Íslands og mannkynssaga fram til 1800
    SAGA1OI05
    14
    saga
    Íslands og mannkynssaga I
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Helstu menningarríki fornaldar er tengjast þróun lýðræðis á Vesturlöndum og samfélag miðalda í Evrópu, víkingaöld og upphaf Íslandsbyggðar. Stjórnarhættir á Íslandi, trúarbrögð á miðöldum, átök um landið á 13. öld, norsk stjórn og síðan dönsk. Endurreisn í Evrópu, könnun heimsins, breytingar á trúarsiðum, stjórnarfari og efnhagsmálum. Upplýsingin á 17. og 18. öld og áhrif hennar erlendis og hér á landi. Unnið með sögulega texta, hugtök og atburði og greint, einnig búinn til rammi til staðsetningar í tíma og rúmi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • völdum þáttum í sögu Vesturlanda frá fornöld til um 1800
    • helstu menningarríkjum í fornöld og upphafi lýðveldis og lýðræðis
    • upphafi Íslandsbyggðar og völdum þáttum úr sögu Íslands fram til 1800
    • nýjum trúar og menningarhugmyndum á Vesturlöndum eftir 1400
    • könnun Evrópubúa á öðrum heimshlutum og áhrifum þess
    • hugmyndum um verslun og hagkerfi 17. og 18. aldar
    • þróun stjórnarfars og hugmynda um það á Vesturlöndum fram til 1800
    • upplýsingunni og áhrifum hennar erlendis og á Íslandi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með einfalda sögulega texta
    • greina texta á gagnrýninn hátt
    • vinna með söguleg hugtök og atburði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • mynda sér sögulegan ramma til að staðsetja sig í tíma og rúmi sögunnar
    • miðla sögulegri þekkingu sinni til samnemenda og annarra
    • skrifa einfaldann sögulegan texta