Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1426454806.03

    Grunnáfangi A
    ÞÝSK1AA05
    34
    þýska
    Byrjunaráfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Þar sem þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu þýskumælandi landa. Til að þjálfa ofantalin atriði geta m. a. eftirfarandi efnisþættir legið til grundvallar í kennslu: Kynning á sjálfum sér og öðrum, að heilsa og kveðja, fjölskylda og fjölskyldutengsl, aldur, búseta, starf, þjóðerni, lönd og tungumál, enn fremur hús og híbýli, tölur, dagar, mánuðir, árstíðir og veður. Aðrir efnisþættir geta verið matur og drykkur, matarvenjur, máltíðir og innkaup, tómstundir og áhugamál, skoðanir (að líka/mislíka), klukkan og tímasetningar. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á þýsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.
    Engar forkröfur
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál og þekkja samskiptavenjur
    • grundvallarþáttum málkerfisins
    • formgerð og byggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
    • beita orðaforða á skýran og sem réttastan hátt hvað varðar málvenjur, framburð, áherslur og hljómfall
    • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og nota viðeigandi málfar
    • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina einfaldar upplýsingar þegar talað er hægt og skýrt
    • velja rétt samskiptaform miðað við aðstæður hverju sinni
    • vinna úr textum á mismunandi hátt eftir því hver tilgangurinn er með lestri hverju sinni
    • átta sig á innihaldi stuttra blaðagreina og texta
    • skipuleggja nám sitt og námsaðferðir
    • meta vinnulag og framfarir í áfanganum
    • vera meðvitaður um hvaða leiðir nýtast best til að tileinka sér þýska tungu
    Fjölbreytilegt námsmat í öllum fjórum færniþáttum tungumálsins, þ.e. lestri, hlustun, tali og ritun.