Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1426456178.85

    Grunnáfangi C
    ÞÝSK1CC05
    36
    þýska
    Þýska 3
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Viðfangsefni undanfaranna eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu þýskumælandi landa. Orðaforðinn er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Til að æfa þessi atriði geta eftirfarandi efnisþættir legið til grundvallar: Fatnaður og fatakaup, persónuleiki og útlit fólks, að lýsa herbergi sínu eða híbýlum, nám og störf, stutt kynning á skólakerfi viðkomandi landa, nám erlendis og að sækja um vinnu. Aðrir efnisþættir geta verið hátíðir og viðburðir, að semja boðskort og svara slíku, senda sms og tölvupóst, svo og fjölmiðlar, þ.e. kynning á útvarpi, sjónvarpi, dagblöðum og tímaritum viðkomandi landa. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á þýsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.
    ÞÝSK1BB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál og þekkja samskiptavenjur
    • grundvallarþáttum málkerfisins
    • formgerð og byggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
    • beita orðaforða á skýran hátt með því að beita málvenjum, framburði, áherslum og hljómfalli á sem réttastan hátt
    • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og nota viðeigandi málfar
    • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi sínu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fylgjast með frásögnum og erindum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt
    • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í náminu
    • tileinka sér aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum og geta dregið ályktanir af því sem hann les
    • lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
    • takast á við margvíslegar aðstæður í almennum samskiptum, beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum og halda samtali gangandi
    • miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, vonum og væntingum
    • útskýra og rökstyðja ákvarðanir og fyrirætlanir sem og gera málamiðlanir
    • miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
    • skrifa um atburði, ímyndaða og raunverulega
    • skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, s.s. kvikmynd eða blaðagrein
    • skrifa um hugðarefni sín og áhugamál
    Fjölbreytt námsmat er í öllum fjórum færniþáttum tungumálsins, þ.e. tali, hlustun, lestri og ritun.