Þar sem þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur
tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun.
Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa
grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu spænskumælandi landa. Til að þjálfa ofantalin atriði geta meðal annars eftirfarandi efnisþættir legið til grundvallar í kennslu:
Kynning á sjálfum sér og öðrum, að kveðja og heilsa, fjölskylda og
fjölskyldutengsl, aldur, búseta, starf, þjóðerni, lönd og tungumál, klukkan og tímasetningar, tölur og dagar, daglegar athafnir og hús og híbýli.
Áhersla verður lögð á að nemendur tjái sig sem mest á spænsku í töluðu og rituðu máli, og einnig verður lögð áhersla á fjölbreytta og skapandi verkefnavinnu þar sem tekið er tillit til áhuga nemenda eins mikið og unnt er. Unnið verður með fjölbreytt efni, meðal annars tónlist, myndbönd, leiki og ýmislegt efni af Netinu sem hjálpar við að komast nær spænskumælandi menningarheimi og eflir menningarlæsi nemenda. Áhersla er lögð á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.
Engar forkröfur
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins • mannlífi, menningu og siðum í löndum, þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál, og þekkja samskiptavenjur • grundvallarþáttum málkerfisins • formgerð og byggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
mannlífi, menningu og siðum í löndum, þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál, og þekkja samskiptavenjur
grundvallarþáttum málkerfisins
formgerð og byggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
beita orðaforða á skýran hátt hvað varðar málvenjur, framburð, áherslur og hljómfall
skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og nota viðeigandi málfar
fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina einfaldar upplýsingar þegar talað er hægt og skýrt
velja rétt samskiptaform miðað við aðstæður hverju sinni
vinna úr textum á mismunandi hátt eftir því hver tilgangurinn er með lestri hverju sinni
átta sig á innihaldi stuttra blaðagreina og texta
skipuleggja nám sitt og námsaðferðir
meta vinnulag og framfarir í áfanganum
vera meðvitaður um hvaða leiðir nýtast best til að tileinka sér spænska tungu
Fjölbreytilegt námsmat er í öllum fjórum færniþáttum tungumálsins, þ.e. tali, ritun, hlustun og lestri.