Í áfanganum lærir nemandinn að beita aðferðum ljósmyndunar til að tjá hugmyndir sínar og tilfinningu fyrir umheiminum. Hann lærir á stillingar ljósmyndavélarinnar (filmu eða stafræna) og spreytir sig í myndatöku aðallega við náttúrulega lýsingu. Nemandinn kynnist vinnu í myrkrakompu þar sem hann framkallar og stækkar svart/hvítar myndir teknar á filmu og gerir tilraunir á skapandi hátt. Áhersla er lögð á eigin túlkun í nálgun viðfangsefna og meðvitund nemanda um inntak og uppbyggingu bæði einstaka mynda og í samhengi innan myndraða.
MYNL2HU05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig hann getur beitt ljósmyndavél við ólíkar aðstæður til að ná fram fjölbreyttu myndefni
tengslum ljósops og tökuhraða
tjáningarmöguleikum sínum frá sjónarhóli ljósmyndunar í myndatöku og í myrkrakompu
meðferð og túlkun ljósmyndunar
mikilvægi ljósmyndunar í samfélaginu og samtímalistum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota handvirkar stillingar myndavélarinnar af öryggi
sjá myndefni í umhverfi sínu
skapa ljósmyndaseríu eftir eigin hugmynd
stækka mynd í stækkara
framkalla filmu
velja ljósmyndir, skoða þær í samhengi og ræða um þær
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna frumkvæði og skapandi nálgun við vinnu í myrkrakompu
öðlast sjálfstraust í myndbyggingu og sjálfstæði í þróun hugmynda
skilja áhrif mismunandi mynduppbyggingar
skilja hvernig samhengi myndanna getur breytt merkingu þeirra
ganga frá og setja upp fjölbreyttar ljósmyndir til sýningar
fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.