Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1426868578.68

    Körfuknattleikur
    ÍÞRG3KÖ03
    15
    íþróttagrein
    körfuknattleikur
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriðin í körfuknattleik. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og að nemendur læri helstu leikreglur körfuboltans. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • leikreglum körfuknattleiksins
    • því hvernig á að leiðbeina yngstu iðkendunum í körfuknattleik.
    • kennslu tækniæfinga í körfuknattleik.
    • skipulagningu körfuknattleiksþjálfunar fyrir yngstu aldurshópana
    • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum fyrir körfuboltaþjálfun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leiðbeina byrjendum í körfuknattleik.
    • nota körfuknattleik sem skólaíþrótt.
    • spila körfuknattleik og framkvæma helstu tækniatriði leiksins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja kennslu og þjálfun fyrir yngstu iðkendurna
    • stjórna hóp barna þar sem virknin og leikgleðin er höfð að leiðarljósi
    • átta sig á ólíkri getu einstaklinganna og finna þeim verkefni við hæfi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá