Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1427189295.07

    Kenningar og rannsóknaraðferðir
    FÉLA3AR05
    25
    félagsfræði
    aðferðafræði rannsókna í félagsfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    AV
    Í áfanganum er fjallað um helstu kenningar og rannsóknaraðferðir greinarinnar. Tengsl einstaklinga og samfélags eru skoðuð og greind í ljósi ólíkra kenninga. Í áfanganum er farið vítt og breitt yfir svið félagsfræðinnar og nemendur fá þjálfun í að beita félagsfræðilegu innsæi. Bornar verða saman eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir og tengsl þeirra við kenningar. Nemendur fá þjálfun í að beita rannsóknaraðferðum og fylgja vísindalegu rannsóknarferli. Áhersla er lögð á að nemandinn öðlist dýpri skilning á hugtökum en áður, setji þau í fræðilegt samhengi og tengi við umhverfi og reynsluheim sinn. Nemandinn er þjálfaður í að beita sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum.
    FÉLA2FA05 eða sambærilegur áfangi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sjónarhornum félagsfræðinnar
    • samskipta-, samvirkni- og átakakenningum
    • megindlegum og eigindlegum rannsóknaraðferðum
    • helstu hugtökum aðferðafræðinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja saman rannsóknarniðurstöður og kenningar
    • beita kenningum, hugtökum og rannsóknaraðferðum á mismunandi viðfangsefni
    • taka fræðilega afstöðu til samfélagslegra álitamála
    • beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sjá félagsleg efni út frá mismunandi sjónarhornum félagsfræðinnar
    • leggja mat á rannsóknir í félagsvísindum
    • leggja mat á hvaða rannsóknaraðferðir henta best
    • meta eigið vinnuframlag og annarra á gagnrýninn hátt
    • setja fram þekkingu sína í ræðu og riti
    • nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.