Heilbrigðisfræði með áherslu á heilbrigðan lífstíl
HBFR1HL04
6
heilbrigðisfræði
heilbrigður lífstíll
Samþykkt af skóla
1
4
AV
Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnþekkingu í heilbrigðisfræði með áherslu á hvað felst í heilbrigðum lífstíl. Fjallað verður um hugtakið heilbrigði og áhrif lifnaðarhátta á eigið heilsufar. Nemandinn fær fræðslu um nauðsyn hreinlætis, umhirðu um eigin líkama, mikilvægi hollustu og hvernig greina eigi á milli hollra og óhollra lífshátta.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
persónulegu hreinlæti og mikilvægi þess í daglegu lífi
áhrifum hreinlætis á líðan
hvað felst í því að taka ábyrgð á eigin hreinlæti og snyrtimennsku
áhrifum lifnaðarhátta á líðan
mikilvægi hollra lífshátta og hreyfingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fara eftir ráðleggingum í hollum lífsháttum, fæðuvali og hreyfingu
stunda ábyrga lífshætti
þekkja helstu þætti er varða persónulegt heilbrigði
þekkja og greina hollar lífsvenjur og næringu
þekkja eigin líkama og taka mark á skilaboðum frá honum
sinna eigin hreinlæti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bera ábyrgð á eigin lífi
viðhafa persónulegt hreinlæti
viðhalda almennri vellíðan
viðhalda og bæta eigin heilsu
stunda heilbrigt líferni
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.