Í áfanganum er leitast við að styrkja nemandann sem einstakling, námsmann og efla virkni hans í hópnum. Lögð er áhersla á að styrkja samkennd nemanda, efla tjáningarhæfni, sjálfstraust og öryggiskennd hans í og utan skóla. Unnið er með skólareglur, umgengni, námsvenjur og annað sem snýr að veru nemandans í VMA. Fjallað um mikilvægi þess að taka ábyrgð á náminu, hegðun, mætingum, neyslumynstri, fjármálum og almennri samfélagsþátttöku. Nemandinn heldur dagbók þar sem hann skrásetur og leggur mat á það sem gert er í lífsleikni. Einnig á nemandinn að vera með námsmöppur þar sem öllum verkefnum er safnað saman.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að nýta hæfileika sína
mikilvægi sjálfstæðis og sjálfsábyrgðar í lýðræðissamfélagi
að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
eigin tilfinningum og skoðunum
hugtakinu læsi í víðu samhengi
mikilvægi tjáningar og hlustunar
ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
mismunandi tjáskiptaleiðum
tilfinningum sínum og styrkleikum
athöfnum daglegs lífs
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með öðrum
taka tillit til annarra
sýna samkennd
taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
nýta sér upplýsingar úr umhverfinu
tjá sig fyrir framan aðra
virða skoðanir annarra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera meðvitaður um styrkleika sína
spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
tileinka sér jákvætt hugarfar
nýta styrkleika sína á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
nýta sér læsi í víðu samhengi
tjá eigin skoðanir
lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
skilja orð og hugtök sem tengjast tilfinningum sínum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.