Unnið verður með alla þætti íslenskunnar og grunnþátturinn velferð hafður að leiðarljósi. Áhersla verður á velferð einstaklingsins í víðum skilningi og einnig verður samspil einstaklings, aðstæðna og umhverfis skoðað og rætt. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, íslenskar kvikmyndir og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að nýta hæfileika sína
hugtakinu velferð
hvernig lýðheilsa sögupersóna birtist í bókmenntum
hugtökum sem tengjast lýðheilsu og velferð
samkennd
mikilvægi þess að taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með öðrum
taka tillit til annarra
taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
sýna samkennd
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta og greina lýðheilsu og velferð í textum eða upplýsingum
auka eigin hæfni og velferð
vera meðvitaður um styrkleika sína
spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
tileinka sér jákvætt hugarfar
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.