Unnið verður með alla þætti íslenskunnar og grunnþátturinn lýðræði og mannréttindi hafður að leiðarljósi. Notaðar verða aldursmiðaðar bókmenntir sem gefa fjölbreytta sýn á aðstæður og umhverfi ungs fólks. Fjölbreytt verkefni verða nýtt í kennslunni. Nemandinn verður hvattur til að velta fyrir sér hugtakinu lýðræði og taka afstöðu til siðferðilegra álitamála, s.s. mannréttinda, samábyrgðar, meðvitundar og virkni borgara við að móta samfélag sitt og hafa áhrif. Megin áhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökunum lýðræði og mannréttindi
fjölbreytileika lýðræðis og mannréttinda
samhenginu á milli réttinda og skyldna
að í lýðræðisríki eiga borgarnir að búa við mannréttindi og komast að samkomulagi
mikilvægi þess að eiga valmöguleika
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
beita gagnrýninni hugsun
virða skoðanir annarra
taka þátt í umræðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja þá hugsun sem felst í hugtökunum lýðræði og mannréttindi
spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
láta skoðanir sínar í ljós
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.