Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem sköpun er höfð að leiðarljósi í þeim tilgangi að brjóta upp hefðbundið mynstur í íslenskukennslu. Áhersla er lögð á uppgötvun, gagnrýna hugsun, umræður og ígrundun ásamt hefðbundnum kennsluaðferðum. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir. Unnið með hugtök, málfræði, íslenska tónlist, lesskilning og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtakinu sköpun í víðu samhengi
að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt en afraksturinn
að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
að mismunandi skoðanir eru viðurkenndar
að sjónarhorn allra er jafnt mikilvægt
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
beita mismunandi aðferðum til að túlka
gagnrýna á uppbyggilegan hátt
koma skoðunum sínum á framfæri
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leita nýrra leiða og mynda sér sjálfstæðar skoðanir
hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar
tjá eigin skoðanir
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.