Áhersla er á lestur og læsi í víðu samhengi, s.s. hugtök, tákn, samskiptamiðla, umhverfi og fleira. Vinnuferlið miðast við að efla skilning, úrvinnslu og samskipta- og umhverfislæsi í þeim tilgangi að nemendur verði virkari og hæfari þátttakendur í samfélaginu. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni. Megináhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtakinu læsi í víðu samhengi
mikilvægi tjáningar og skynjunar
ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
mismunandi tjáskiptaleiðum
mikilvægi lesturs og bókmennta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota upplýsingar á stafrænum miðlum
tjá sig með fjölbreyttum leiðum
vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
taka þátt í umræðum
lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér læsi í víðu samhengi
hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
nýta sér upplýsingar sem koma fram t.d. í fjölmiðlum og netmiðlum
tjá eigin skoðanir
nýta sér ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir, fræðigreinar og fl.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.