Nemendur þjálfast í að taka þátt í atvinnulífinu og fá tækifæri til að fræðast um mismunandi starfsgreinar og störf þeim tengdum. Nemandinn fær tækifæri til að víkka reynsluheim sinn með þvi að upplifa og kynnast margvíslegum störfum. Nemandinn undirbýr og vinnur úr starfsnámi og vettvangsheimsóknum sem hann tekur þátt í.
Að hafa lokið sem svarar a.m.k. fimm anna námi og hafa lokið STAR1ST04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreyttum starfsheitum
fjölbreyttum vinnustöðum
mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
þeirri færni sem nauðsynleg er í mismunandi störfum
í hverju störfin eru fólgin
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja viðeigandi starfsheiti við vinnustaði
taka þátt í umræðum um ákveðin starfsheiti
sækja sér upplýsingar um ný og áður óþekkt starfsheiti
vinna úr vettvangsheimsóknum með ýmsu móti
taka þátt í umræðum tengdum störfum
búa til verkefnabók
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem í þeim felast
átta sig á mismunandi kröfum og/eða menntun sem liggja að baki ýmsum starfsheitum
taka þátt í atvinnulífinu
efla áhuga og virkni í vettvangsheimsóknum og í starfsnámi
þekkja viðeigandi hegðun í vettvangsheimsóknum og í starfsnámi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.