Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1427205758.08

    Starfsfræðsla með áherslu á skólalok og útskrift
    STAR1SÚ04
    24
    starfsnám
    Skólalok og útskrift
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    AV
    Í áfanganum fá nemendur fræðslu um þá möguleika sem bjóðast að loknu námi varðandi frekara nám, störf og áhugamál. Fjallað verður um mismunandi búsetuform, færslu heimilisbókhalds, áætlanir um matarinnkaup, skipulagningu heimilishalds og fleira tengt því. Nemandinn lærir að lesa og skilja launaseðla. Þá er fjallað um réttindi, ábyrgð og skyldur einstaklinga sem borgara og þátttakenda í lýðræðissamfélagi. Einnig verður fjallað um þátt stéttarfélaga og hlutverk þeirra í samfélaginu. Að auki undirbúa nemendur útskrift að vori, skipuleggja fjáröflun og sameiginlegt ferðalag. Áfanginn er tekin á lokaári.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvað það þýðir að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
    • hvað þurfi til að búa sjálfstætt
    • hvaða möguleika hann hafi til frekara náms
    • hvar hann leitar eftir starfi og hvaða leiðir hann hefur til að fá það starf sem hann óskar eftir
    • mikilvægi frístundastarfa og félagslegrar virkni
    • heilsusamlegu líferni
    • skipulagningu útskriftar
    • atvinnutækifærum og fyrirtækjum í nærsamfélaginu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • halda heimilisbókhald
    • gera áætlanir um innkaup
    • framkvæma þrif á heimili
    • leita eftir upplýsingum á netinu um opinbera þjónustu
    • lesa launaseðil
    • lesa innihaldslýsingar með tilliti til hollustu og góðrar heilsu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta möguleika sína hvað varðar nám, atvinnu, búsetu og áhugamál
    • skipuleggja heimilishald
    • nýta sér tómstunda- og félagsstörf sem henta
    • búa til eigin ferilskrá
    • njóta líðandi stundar og samveru við aðra
    • lifa heilbrigðu lífi
    • undirbúa og skipuleggja merkisviðburði eins og útskrift
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.